Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

19.10.2026

Umsóknarfrestur

29.10.2026

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Heilsugæslan Hvammi í Kópavogi leitar að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi í 80% tímabundið starf í eitt ár.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði einstaklinga.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Hvammi starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.

Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri

  • Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf

  • Einstaklings- og hópmeðferð

  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla

  • Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu

  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði

  • 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

  • Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna

  • Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð enskukunnátta æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðný Ásgeirsdóttir

Tölvupóstur: gudny.asgeirsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5850

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

19.10.2026

Umsóknarfrestur

29.10.2026