Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri skylduskila hjá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.08.2026

Umsóknarfrestur

01.09.2026

Teymisstjóri skylduskila hjá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn óskar eftir að ráða teymisstjóra í fullt starf í skylduskil á aðfangasviði safnsins. Skylduskil sjá um móttöku og innheimtu skilaskyldrar útgáfu og sjá til þess að efnið sé skráð og varðveitt til frambúðar á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Markmið skylduskila er að tryggja að útgáfustarfsemi samtímans varðveitist sem menningararfur framtíðar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á bókmenningu og útgáfustarfsemi á Íslandi. Við bjóðum upp á fjölbreytt og spennandi verkefni, sveigjanlegt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi. Í starfinu felast mikil samskipti og samvinna við önnur svið safnsins og við hagsmunaaðila utan safnsins. Teymisstjóri skylduskila heyrir undir sviðsstjóra aðfangasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróar, skipuleggur og samræmir skylduskil til safnsins og innleiðir nýjungar

  • Verkefnastjórn teymis skylduskila, virkjar starfsfólk hópsins og hvetur til góðra verka

  • Rækir samband við útgefendur og aðra aðila sem koma að skilaskyldri útgáfu

  • Miðlar upplýsingum til starfsfólks og upplýsir sviðsstjóra um viðfangsefni hverju sinni

  • Yfirumsjón með innheimtu, móttöku og aðfangaskráningu skilaskylds efnis, óháð útgáfuformi

  • Regluleg upplýsingagjöf og ráðgjöf til skilaskyldra aðila

  • Úrvinnsla skilaskylds efnis og gjafa sem safninu berast

  • Úrvinnsla og framsetning tölulegra gagna

  • Umsjón með vinnu við rafræna varðveislusafnið Rafhlaðan, tekur þátt í vefsöfnun íslenskra léna

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í bókasafns- og upplýsingafræði eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Hagnýt starfsreynsla

  • Þekking á íslenskri útgáfustarfsemi er æskileg

  • Reynsla af gagnasöfnum og bókasafnskerfinu Ölmu er kostur

  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð

  • Skipulagshæfileikar og mikil samskiptafærni

  • Mjög góð tölvufærni og tæknilæsi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Reynsla af stjórnun er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525-5600 | www.landsbokasafn.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hallfríður Hr Kristjánsdóttir

sviðsstjóri aðfangasviðs

Tölvupóstur: hallfridur.h.kristjansdottir@landsbokasafn.is

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri skylduskila hjá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.08.2026

Umsóknarfrestur

01.09.2026