Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður á myndgreiningadeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.11.2026

Umsóknarfrestur

12.11.2026

Aðstoðarmaður á myndgreiningadeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns á myndgreiningardeild. Um er að ræða 100% stöðu sem er laus frá og með 16. nóvember 2026.

Næsti yfirmaður er Elvar Örn Birgisson, deildarstjóri myndgreiningardeildar og gefur nánari upplýsingar í síma 843-5923 og/eða í tölvupósti elvar@sak.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sjá um tímabókanir

  • Bóka sjúklinga í rannsóknir

  • Fylgja sjúklingum innan stofnunar frá myndgreiningardeild

  • Aðstoða geislafræðinga og myndgreiningarlækna við þjónustu við sjúklinga

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslensku kunnátta

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elvar Örn Birgisson

deildarstjóri

Tölvupóstur: elvar@sak.is

Sími: 843-5923

Klara Fanney Stefánsdóttir

aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: kfs1110@sak.is

Sími: 852-5618

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður á myndgreiningadeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.11.2026

Umsóknarfrestur

12.11.2026