Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri hönnunar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.10.2026
Umsóknarfrestur
28.10.2026
Verkefnastjóri hönnunar
Langar þig að hafa áhrif á það hvernig húsnæði ríkisins verður til? Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) er nú laust spennandi starf verkefnastjóra í deild hönnunar á sviði hönnunar og áætlana. Þar færðu tækifæri til að leiða verkefni frá fyrstu hugmynd og fram að útboði framkvæmda, í nánu samstarfi við önnur svið FSRE, ráðuneyti og stofnanir.
Deild hönnunar sér um verkefnastjórn við frumathugun, frum-, for- og verkhönnun, eftirfylgni með framgangi verkefna hvað varðar kostnað, gæði og tíma, undirbúning útboða og útboðsgagna í samvinnu við útboðssérfræðinga ásamt gerð skilamats á verkhlutum hönnunar. Verkefnin eru fjölbreytt og snúa meðal annars að aðstöðu stofnana og ráðuneyta, endurgerð mannvirkja og leiguverkefnum, innan og utan eignasafns FSRE.
Sem verkefnastjóri berð þú fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á verkefnum, allt frá fyrstu greiningu í gegnum hönnun og útboð. Þú leiðir hönnunarferlið og heldur utan um alla þræði, en hönnunarvinnan sjálf er ekki á þinni könnu. Þú vinnur sjálfstætt, hefur frumkvæði og færð að nýta sérþekkingu þína, tekur þátt í verkefnahópum þvert á stofnunina og styður önnur svið FSRE við þarfagreiningar og frumathuganir. Starfið heyrir undir deildarstjóra hönnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Á þínu borði verða meðal annars:
Verkefnastjórn í framkvæmda- og leiguverkefnum á stigi greininga og hönnunar, með fjárhagslegri og stjórnunarlegri ábyrgð verkefna
Umsjón með gerð frumathugana og þ.á.m. þarfa-, valkosta- og kostnaðargreininga
Umsjón með útboðum hönnunar í leigu- og framkvæmdaverkefnum í samvinnu við útboðssérfræðinga og framkvæmdasvið, þar á meðal gerð kröfulýsinga
Umsjón með hönnunarstigi verkefna, með tilliti til tíma og kostnaðar
Samskipti við hagsmunaaðila, ráðuneyti og stofnanir
Eftirfylgni, gerð tíma- og kostnaðaráætlana og stöðumat verkefna
Þátttaka í þróunar- og umbótaverkefnum þvert á FSRE
Hæfniskröfur
Við leitum að manneskju sem hefur:
Háskólamenntun á sviði mannvirkjagerðar, t.d. verkfræði, tæknifræði, byggingafræði eða arkitektúr. Meistarapróf er skilyrði
Þekkingu og reynslu af aðferðafræði verkefnastjórnunar og verkefnastjórn mannvirkja á greiningar- og/eða hönnunarstigi
Reynslu af þarfa- og kostnaðargreiningum
Reynslu af hönnunarferli og rýni hönnunar
Þekkingu og reynslu af útboðsferli og ferli opinberra framkvæmda
Færni í textagerð og framsetningu greininga og hönnunargagna
Jákvætt og lausnamiðað viðhorf, færni í mannlegum samskiptum og ríka hæfni í teymisvinnu
Góða færni í að forgangsraða verkefnum og skila árangri í kviku starfsumhverfi
Þjónustumiðuð og skipulögð vinnubrögð
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
Iðnmenntun á byggingarsviði til viðbótar við háskólamenntun
Þekking á hönnunarhugbúnaði og upplýsingalíkönum (BIM)
Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu
Þekking á stafrænni þróun
Reynsla af skipulagsmálum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Hjá FSRE bjóðum við:
Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma
Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins
Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars í gegnum alþjóðlegt tengslanet
Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu
Um FSRE
FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar, með það að leiðarljósi að afla góðs en hagkvæms húsnæðis í allra þágu. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins, 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Hjá FSRE starfa um 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaumsýslu, framkvæmda og eignastýringar.
Umsókn
Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri hönnunar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.10.2026
Umsóknarfrestur
28.10.2026