
Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofa Alþingis - lögfræðingar í nefndadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.09.2026
Umsóknarfrestur
01.10.2026
Skrifstofa Alþingis - lögfræðingar í nefndadeild
Viltu stuðla að vandaðri lagasetningu og virku þingeftirliti? Þá erum við með rétta starfið fyrir þig.
Við leitum að lögfræðingum til starfa í nefndadeild á skrifstofu Alþingis. Þau starfa fyrir fastanefndir þingsins, í hringiðu stjórnmálanna, veita lögfræðilega ráðgjöf og sjá um faglega yfirferð mála sem koma til meðferðar hjá fastanefndum. Í starfinu felst jafnframt skipulagning nefndastarfsins og samskipti við stjórnvöld og aðila utan þings fyrir fastanefndir. Starfið er fjölbreytt og verkefnin krefjandi og skemmtileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lögfræðileg ráðgjöf og fagleg aðstoð við fastanefndir og þingmenn
Yfirferð lagafrumvarpa og annarra þingmála
Gerð lögskýringargagna, svo sem nefndarálita og breytingartillagna
Skipulagning og umsjón með starfi fastanefnda, m.a. samskipti við stjórnvöld og aðila utan þings
Þátttaka í umbótastarfi og þróun verklags
Hæfniskröfur
Grunn- og meistarapróf í lögfræði (eða kandídatspróf). Viðbótarnám eða lögmannsréttindi eru kostur
Mjög góð þekking á störfum löggjafans, s.s. þekking á störfum og verkefnum fastanefnda
Marktæk reynsla af lagasetningarferlinu, s.s. gerð lögskýringargagna, lagafrumvarpa eða lagabreytinga
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
Faglegur metnaður, jákvæðni og framúrskarandi samskiptahæfni
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið í ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína til að gegna starfinu, dæmi um lögskýringargögn, lagafrumvörp, lagabreytingar eða sambærilegt sem umsækjandi hefur komið að skrifum á, staðfesting á prófgráðum og upplýsingar um tvo umsagnaraðila. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Til stendur að ráða í tvær stöður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Tekið er mið af jafnréttisáætlun skrifstofu Alþingis við ráðningar. Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Gildi skrifstofunnar eru fagmennska, virðing og framsækni. Nánari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef Alþingis.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Elín Ósk Helgadóttir
deildarstjóri nefndadeildar
Tölvupóstur: elin.o.helgadottir@althingi.is
Sími: 563-0500

Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofa Alþingis - lögfræðingar í nefndadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.09.2026
Umsóknarfrestur
01.10.2026