Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Hvernig hafa húsin okkar það?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.10.2026
Umsóknarfrestur
28.10.2026
Hvernig hafa húsin okkar það?
Taktu þátt í að móta framtíð stærsta fasteignasafns landsins sem verkefnastjóri viðhaldsáætlana.
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins og vinnur nú að því að gera langtímaáætlanir um viðhald þess með heildstæðum hætti, verkefni sem ekki hefur áður verið sinnt á þennan hátt. Við leitum að öflugum verkefnastjóra viðhaldsáætlana til að ganga til liðs við teymi sem sinnir verkefninu. Þar gefst tækifæri til að hafa mikil áhrif á hvernig verkefnið og verklagið þróast, greina ástand og viðhaldsþörf eigna og hafa áhrif á forgangsröðun verkefna svo eignirnar haldi verðgildi sínu og nýtist sem best.
Í starfinu stýrir þú úttektum á ástandi fasteigna og gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald, og tekur þátt í að þróa verklag og viðmið við ástandsmat. Þú kemur að gerð útboðsgagna og samninga um ástandsmat og vinnur náið með eignastýringu, þjónustuborði og forsvarsmönnum stofnana. Eignirnar eru af öllum toga og um allt land, allt frá skólum, heilbrigðisstofnunum og lögreglustöðvum til menningarhúsa og sögulegra bygginga, og einhverjar ferðir innanlands geta fylgt starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjórn við greiningu á viðhaldsþörf eigna ríkisins
Umsjón með úttektum á ástandi fasteigna, mat á viðhaldsverkefnum og þátttaka í forgangsröðun
Gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald eigna
Áframhaldandi þróun verklags og viðmiða við ástandsmat
Þátttaka í gerð útboðsgagna og rekstri samninga um ástandsmat
Samstarf við eignastýringu og viðskiptastjóra um forgangsröðun eigna og verkefna
Hæfniskröfur
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í mannvirkjagerð, t.d. byggingafræði, tæknifræði, arkitektúr eða verkfræði
Að minnsta kosti 5 ára reynsla í mannvirkjagerð
Góð samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
Stafræn færni, geta til að vinna með gögn og læra á ný tölvukerfi
Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
Reynsla af viðhaldi, ástandsmati eða umsjón fasteigna
Iðnmenntun og starfsreynsla á verkstað
Reynsla af hönnun bygginga
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun
Reynsla af útboðsmálum, innkaupum, rekstri samninga eða opinberri stjórnsýslu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við bjóðum
Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma
Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins
Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars aðgang að fjölbreyttum fræðsluveitum og alþjóðlegu tengslaneti
Heilsustyrk og samgöngustyrk
Hádegisþjónustu Maul
Öflugt starfsmannafélag
Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu
Um FSRE
FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar, með það að leiðarljósi að afla góðs en hagkvæms húsnæðis í allra þágu. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins, 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Hjá FSRE starfa um 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaumsýslu, framkvæmda og eignastýringar. Við vinnum með gildin FRAMSÝNI - FAGMENNSKA - SAMVINNA að leiðarljósi.
Umsókn
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Starfsstöð er í Reykjavík.
Umsókn óskast fyllt út á Starfatorgi og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Inga Hanna Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: inga.gudmundsdottir@fsre.is
Davíð Friðgeirsson
Tölvupóstur: david.fridgeirsson@fsre.is
Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Hvernig hafa húsin okkar það?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.10.2026
Umsóknarfrestur
28.10.2026