Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

27.11.2026

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar

Innkaupadeild Landspítala leitar að öflugum, skipulögðum og lausnamiðuðum verkefnastjóra til starfa í samningateymi deildarinnar. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka virkan þátt í uppbyggingu og þróun nýs teymis þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, öflugt samstarf og árangursríka samningastjórnun.

Við leitum að einstaklingi með reynslu af samningagerð og samningastjórnun, góða þekkingu á hjúkrunar- og rekstrarvörum og ríka hæfni í samskiptum. Starfið hentar einstaklingi sem hefur frumkvæði, vinnur sjálfstætt og hefur áhuga á að þróa og bæta verklag í krefjandi og fjölbreyttu starfsumhverfi.

Meginhlutverk innkaupadeildar er að annast opinber innkaup á vörum, tækjum og þjónustu fyrir Landspítala og aðrar heilbrigðisstofnanir á Íslandi. Deildin heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið Landspítala og sinnir m.a. útboðum, verðfyrirspurnum, samningskaupum, samningagerð, eftirfylgni samninga og samningastjórnun.

Starfið felur í sér víðtækt samstarf við hagaðila innan Landspítala, innkaupaaðila annarra heilbrigðisstofnana, birgja og aðra samstarfsaðila á markaði.

Starfshlutfall er 100% og er upphafsdagur starfs samkomulag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við undirbúning og gerð samninga í kjölfar opinbers innkaupaferlis

  • Vinna við framlengingar, breytingar og aðra umsýslu samninga

  • Framfylgni samninga

  • Eftirfylgni með samningum, gæðum og þjónustustigi birgja (samningastjórnun)

  • Þátttaka í þróun og stöðugum umbótum á ferlum og verklagi tengdu samningagerð, samningastjórnun, eftirfylgni og eftirliti samninga

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, háskólapróf í viðskiptafræði ásamt háskólaprófi í hjúkrunarfræði eða önnur menntun á sviði heilbrigðisvísinda er mikill kostur

  • Viðbótarmenntun í verkefnastjórnun (t.d. MPM, IPMA eða PRINCE2-vottun) og/eða menntun á sviði viðskipta eða opinberrar stjórnsýslu er mikill kostur

  • Reynsla af samningagerð og samningastjórnun

  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla úr sambærilegu starfi

  • Þekking og reynsla á hjúkrunar- og rekstrarvörum

  • Áhugi á innkaupum og hagræðingu í innkaupum

  • Reynsla af verkefnastjórnun og hagnýtri gagna- og markaðsgreiningu er kostur

  • Hæfni til að starfa undir álagi og forgangsraða verkefnum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli, þekking á norðurlandamáli er mikill kostur

  • Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð ásamt viðeigandi tölvufærni

  • Framúrskarandi samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 4/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, innkaupafulltrúi, skrifstofustarf, viðskiptafræðingur, heilbrigðisvísindi, verkefnastjórnun

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Harðardóttir

Tölvupóstur: huldahar@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

27.11.2026