Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsfólk í eldhúsi- HSN Sauðárkrókur

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

23.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Starfsfólk í eldhúsi- HSN Sauðárkrókur

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki leitar að jákvæðu og ábyrgu starfsfólki til að starfa í eldhúsi. Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í eldhúsi þar sem lögð er áhersla á gott samstarf, fagmennsku og hreinlæti. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Sauðárkrókur og Skagafjörður bjóða upp á framúrskarandi aðstæður til að samræma gefandi starf og gott líf utan vinnu, þar sem stutt er í náttúruna og samfélagið einkennist af samheldni, öflugu menningarlífi og fjölbreyttum tækifærum til afþreyingar.

Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og framreiðsla máltíða í samræmi við verklagsreglur

  • Aðstoð við matreiðslu og bakstur

  • Uppvask, þrif og almennur frágangur í eldhúsi

  • Móttaka og meðhöndlun hráefna

  • Tryggja að reglum um hreinlæti og matvælaöryggi sé fylgt

  • Samstarf við annað starfsfólk við að tryggja góða þjónustu

  • Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta stjórnanda

Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum í eldhúsi er kostur

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð

  • Hæfni til að vinna í teymi og taka þátt í góðu samstarfi

  • Almenn hollustuhátta- og hreinlætisvitund

  • Stundvísi og þjónustulund

  • Íslensku- eða enskukunnátta skilyrði

  • Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Aldan, stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is

Sími: 432 4200

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsfólk í eldhúsi- HSN Sauðárkrókur

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

23.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026