
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á næturvaktir á nýrri bráðamatsdeild F2 í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
03.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Hjúkrunarfræðingur á næturvaktir á nýrri bráðamatsdeild F2 í Fossvogi
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi til starfa á nýrri bráðamatsdeild F2 Fossvogi, í 50-60% næturvaktahlutfalli. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga, takast á við áskoranir í starfi, efla klíníska færni sína og verða framúrskarandi í mati og meðferð bráðveikra sjúklinga.
Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráð veikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks og stuðla að öflugri þverfaglegri teymisvinnu, með áherslu á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði, innan eða utan spítalans.
Deildin er opin allan sólarhringinn og unnið er í vaktavinnu. Starfshlutfall er 50-100%, þar af 50-60% næturvaktir. Upphaf starfa er eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga
Taka virkan þátt í greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga í samstarfi við þverfaglegt teymi
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
Góð íslenskukunnátta er æskileg
Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, næturvaktir, teymisvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á næturvaktir á nýrri bráðamatsdeild F2 í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
03.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026