Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?

Bráðamatsdeildin í Fossvogi auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun. Sérfræðingurinn mun gegna lykilhlutverki í þróun, samræmingu og eflingu þjónustu á bráðamatsdeild lyflækninga í nánu samstarfi við aðra bráðaþjónustu og fagstéttir.

Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk, auk klínískra starfa, er ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar- og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. Að auki er hann leiðandi í þróun hjúkrunar í samræmi við sýn og stefnu hjúkrunar á Landspítala.

Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráðveikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks með öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem áherslan er á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans.

Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks með öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem áherslan er á að koma sjúklingum hratt gegnum viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans. Bráðamatsdeildin er mikilvægur hluti af þróun bráðaþjónustu á Landspítala.

Við bjóðum upp á sveigjanleika varðandi starfshlutfall og vinnufyrirkomulag. Upphaf starfa er samkomulag.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun hjúkrunar og þjónustu innan sérgreinar

  • Frumkvæði og innleiðing nýrra verkferla

  • Kennsla og fræðsla

  • Ráðgjöf til sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks

  • Rannsóknir og gæðastörf

  • Klínísk störf eftir atvikum

Hæfniskröfur

  • Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun

  • Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun

  • Starfsreynsla í hjúkrun

  • Leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Reynsla af teymisvinnu

  • Mjög góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðingur í hjúkrun, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 5/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður Árna Gísladóttir

Tölvupóstur: sigrgisl@landspitali.is

Sími: 897-0788

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026