Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í umhverfisverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.09.2026

Umsóknarfrestur

08.10.2026

Lektor í umhverfisverkfræði

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í umhverfisverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Markmið deildarinnar er að styrkja nám og rannsóknir í verkfræðilegum aðferðum sem stuðla að sjálfbæru þjóðfélagi. Nýjum lektor er ætlað að leiða kennslu og rannsóknir á sviði vatnaverkfræði og verkfræði endurnýjanlegrar orku. Sérstök áhersla er á eftirtöldum fagsviðum: Vatna- og/eða straumfræði í köldu loftslagi, hagnýting vatns-, vind- og/eða sjávarfallaorku, stór gagnasett s.s. loftslagslíkön og gervihnattagögn, vatna- og orkumannvirki. Lektorinn er með aðsetur í Háskóla Íslands í Reykjavík. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir, birta ritrýndar vísindagreinar, afla utanaðkomandi rannsóknarstyrkja og eiga virka þátttöku í alþjóðlegum verkefnum og samstarfi.

  • Byggja upp meistara- og doktorsnám á fagsviðinu og leiðbeina framhaldsnemum í umhverfis- og byggingarverkfræði.

  • Þróa, kenna og hafa umsjón með grunn- og framhaldsnámskeiðum.

  • Vinna akademísk þjónustu- og stjórnunarstörf.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í umhverfis- og/eða byggingarverkfræði.

  • Reynsla af háskólakennslu.

  • Reynsla af skipulagningu námskeiða, verklegrar kennslu og leiðbeiningu lokaverkefna á háskólastigi er æskileg.

  • Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi.

  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknastarfa er kostur.

  • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum er kostur.

  • Sérfræðiþekking á köldu loftslagi, náttúruvá og byggðu umhverfi er æskileg.

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Góð hæfni í skrifuðu og töluðu máli á ensku.

  • Hæfni til kennslu á íslensku er kostur. Gerð er krafa um að innan fjögurra ára frá ráðningu hafi B1-stigi verið náð. Háskóli Íslands býður upp á aðstoð við að öðlast nauðsynlega tungumálafærni.

Umsækjandi þarf að geta uppfyllt skilyrði Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins fyrir löggildingu starfsheitisins verkfræðingur og hljóta leyfisbréf fyrir starfsheitinu innan árs frá upphafi starfsins.

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að störf hefjist eigi síðar en 1. ágúst 2027.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er ein sex deilda Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Við deildina stunda um 170 stúdentar nám, þar af um 50 framhaldsnemar. Við deildina starfa um 10 akademískir starfsmenn. Deildin hefur sterk alþjóðleg tengsl og mörg rannsóknaverkefni eru unnin í samstarfi hérlendis og erlendis.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrund Ólöf Andradóttir

Deildarforseti

Tölvupóstur: hrund@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í umhverfisverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.09.2026

Umsóknarfrestur

08.10.2026