Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

28.08.2026

Umsóknarfrestur

08.01.2027

Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf

Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun að starfinu. Lágmarksaldur er 18 ár.

Ef óskir eru um ákveðið svið/ deild skal skrá þær í ,,Annað'' reitinn.

Landspítali er miðstöð þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Hér starfar fjölbreyttur hópur fólks sem leggur metnað í fagmennsku og stöðugar umbætur. Við vinnum saman að því að veita góða og örugga heilbrigðisþjónustu með sjúklinginn í öndvegi. Hér fær fólk tækifæri til að vaxa og þróast í starfi. Við viljum vera einn af bestu vinnustöðum landsins, með góðum starfsskilyrðum og samkeppnishæfum kjörum.

Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.

  • Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur

  • Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt

Öll ótímabundin störf eru auglýst á Starfatorgi Landspítala og sækja þarf um þau sérstaklega. Við hvetjum þig að skoða auglýst störf hjá okkur.

Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega, en stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf. Að loknum umsóknarfresti verður birt ný safnauglýsing. Ef þú vilt vera áfram á skrá er þér velkomið að leggja inn nýja umsókn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir deildum

  • Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Íslenskukunnátta

  • Lágmarksaldur er 18 ár

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, umönnun, starfsmaður, aðhlynning

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2027

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Harðardóttir

Tölvupóstur: mannaudur@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

28.08.2026

Umsóknarfrestur

08.01.2027