Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstaða í heimilislækningum - HSN Sauðárkrókur

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026

Sérnámsstaða í heimilislækningum - HSN Sauðárkrókur

Laus er til umsóknar sérnámsstaða í heimilislækningum við Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki. Sérnámsstaðan veitist frá 1. nóvember 2026 og með fyrirvara um samþykki kennsluráðs sérnáms í heimilislækningum á Íslandi.

Sérnámslæknar í heimilislækningum fá tækifæri til að starfa í fjölbreyttu klínísku umhverfi þar sem lögð er áhersla á góða handleiðslu, breiða reynslu og virka þátttöku í greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga á öllum aldri.

Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.

Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira.

Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fjölbreytt starfsnám við heilsugæslu sem sinnir bráða- og slysaþjónustu á vöktum

  • Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sérfræðinga og þátttaka í vaktþjónustu með lækni með sérfræðimenntun á bakvakt

  • Einstaklingsmiðuð námsáætlun

  • Hópkennsla og námsferðir með öðrum sérnámslæknum

  • Vinnur á námstímanum að rannsóknar- eða gæðaverkefni

  • Nám samhliða starfi

  • Náin samvinna við aðra lækna og annað starfsfólk starfsstöðvarinnar

  • Þátttaka í teymisvinnu

Sérnámslæknir vinnur að skipulagi námsins í samvinnu við handleiðara og kennslustjóra sérnáms. Sérnám í heimilislækningum byggir á marklýsingu Félags íslenskra heimilislækna, sjá nánar á Sérnám í heimilislækningum (throunarmidstod.is)

Hæfniskröfur

  • Almennt íslenskt lækningaleyfi

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni

  • Frumkvæði, faglegur metnaður og geta til að starfa sjálfstætt

  • Áreiðanleiki, samviskusemi og vandvirkni

  • Framúrskarandi samstarfshæfni og samvinna við ólíka hópa

  • Jákvæð reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

  • Lausnamiðuð hugsun og vinnubrögð

  • Gott orðspor, ökuréttindi og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Ólafsdóttir

yfirlæknir

Tölvupóstur: sigurbjorg.olafsdottir@hsn.is

Sími: 432 4215

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstaða í heimilislækningum - HSN Sauðárkrókur

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026