
Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í jöklafræði
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
30.09.2026
Sérfræðingur í jöklafræði
Veðurstofa Íslands leitar að metnaðarfullum og áhugasömum sérfræðingi til þess að taka þátt í rannsóknum og vöktun á jöklum. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt framtíðarstarf þar sem áhrif loftslagsbreyting á jökla, samspil eldvirkni og jökla og þátttaka í innlendum og erlendum rannsóknarverkefnum eru í forgrunni. Vöktun á jöklum og viðbragð við náttúruvá er einnig mikilvægur hluti af starfinu sem jafnframt hefur beina tengingu við samfélagið.
Sérfræðingurinn mun starfa á þjónustu- og rannsóknasviði en hlutverk þess er að skilgreina, móta, leiða og taka þátt í rannsókna- og þróunarverkefnum meðal annars í samstarfi við systurstofnanir er varðar alla helstu eðlisþætti jarðar. Verkefni sviðsins snúa einnig að almennum grunnrannsóknum og vísindalegri úrvinnslu gagna, líkanagerð, ásamt þróun afurða og aðferðafræði til að bæta þjónustu stofnunarinnar. Verkefni sviðsins tengjast meðal annars veðri, loftslagsbreytingum, ofanflóðum, jarðskjálftum, eldvirkni, jarðskorpuhreyfingum, vatnafari og jöklabúskap.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðingurinn mun starfa innan deildar loftslags, veðurs, vatns, jökla og hafs, þar sem unnið er m.a. að rannsóknum og vöktun á jöklum. Helstu verkefni sérfræðingsins felast í kortlagningu á yfirborði og hreyfingu jökla, auk þátttöku í mælingum og úrvinnslu á afkomu jökla, bæði með athugunum í felti og fjarkönnun.
Sérfræðingurinn tekur einnig þátt í líkanreikningum og gerð hættumats vegna jökulhlaupa sem eiga upptök sín í jarðhitakötlum eða vegna eldgosa undir jökli, sem og vegna óstöðugra hlíða sem geta fallið í jökullón.
Starfið felur jafnframt í sér úrvinnslu og miðlun gagna til alþjóðlegra stofnana, ráðgjöf og fræðslu, auk virkrar þátttöku í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í jöklafræði, jarðvísindum, verkfræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi. Doktorspróf er kostur
Kunnátta í forritun og reynsla af líkanreikningum
Kunnátta í landupplýsingakerfum (LUK)
Farsæl reynsla af því að vinna með stór gagnasöfn
Þekking á íslenskri náttúru og áhugi á viðfangsefninu
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
Skipulögð og fagleg vinnubrögð í starfi
Reynsla af vettvangsvinnu, s.s. útivist og ferðum í óbyggðum
Góð tungumálakunnátta og færni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku
Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína í starfið.
Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í jöklafræði
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
30.09.2026