Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

17.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir geðhjúkrunarfræðingi til starfa í 60 - 100 % ótímabundið starf hjá Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Fjölmörg tækifæri eru innan teymisins til að efla faglega þekkingu og sérhæfingu á sviði geðhjúkrunar, þar sem teymið er í stöðugri þróun. Ráðið er í starfið frá 1. nóvember 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir einstaklinga sem eru 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og/eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins eru jafnframt oft með fjölbreyttan taugaþroska og sjúkdóma, svo sem einhverfu. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu innan teymisins og náið samstarf þvert á heilbrigðis- og velferðarþjónustu um land allt.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu, þar sem teymisvinna, fagmennska og góður starfsandi eru í fyrirrúmi.

Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu teymi þar sem þverfagleg samvinna og fagleg þróun eru lykilþættir. Ef þú hefur áhuga á að sinna mikilvægu og áhrifaríku starfi með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga, þá er þetta rétta tækifærið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meðferðarvinna

  • Málastjórn

  • Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd og yfirsýn yfir meðferðarúrræði skjólstæðinga

  • Starfa í þverfaglegu teymi og stuðla að árangursríku teymisstarfi innan sem utan stofnunar

  • Vera leiðandi í ráðgjöf og fræðslu til skjólstæðinga, aðstandenda og stuðningsaðila

  • Skipuleggur og veitir fjölskyldustuðning fyrir skjólstæðinga, aðstandendur, stuðningsaðila og þjónustu

  • Heilsumælingar og ráðgjöf

  • Efla fagmennsku og þróun í geðhjúkrun

  • Þróa og veita meðferð byggða á gagnreyndri þekkingu og meta árangur

  • Fylgjast með nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu og tekur þátt í þróun þjónustu með skilvirkni, gæði og árangur að leiðarljósi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Meistaranám eða diplómanám í geðhjúkrun skilyrði

  • Reynsla af meðferðarvinnu í geðheilbrigðisþjónustu æskileg

  • Reynsla af handleiðslu í geðheilbrigðisþjónustu

  • Reynsla af rannsóknar- og þróunarvinnu

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót

  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Hæfni og áhugi á teymis-og verkefnavinnu

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bjargey Una Hinriksdóttir

Fagstjóri geðheilsuteymis taugaþroskaraskana

Tölvupóstur: bjargey.una.hinriksdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6750

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Geðhjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

17.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026