Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í innkaupum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.09.2026

Umsóknarfrestur

13.10.2026

Sérfræðingur í innkaupum

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa í innkaupastýringu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á faglega þekkingu, greiningarhæfni, skipulag og þjónustulund. Starfið felur meðal annars í sér dagleg innkaup, greiningu gagna, ráðgjöf til starfsstöðva, eftirfylgni samninga og þátttöku í þróun og samræmingu innkaupaferla. Áhersla er lögð á hagkvæm, gagnsæ og samræmd innkaup í samræmi við gildandi lög, reglur og samninga.

Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni, á auðvelt með samskipti og hefur brennandi áhuga á innkaupum, birgðastýringu og skilvirkum ferlum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með innkaupum á rekstrar- og heilbrigðisvörum í samræmi við lög og reglur um opinber innkaup.

  • Gerð innkaupapantana og skráning í innkaupa- og fjárhagskerfi.

  • Afgreiðsla og eftirfylgni innkaupabeiðna frá starfsstöðvum HH.

  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja.

  • Stýra innkaupum með gagnadrifinni ákvarðanatöku.

  • Birgðastýring og eftirlit með birgðastöðu.

  • Skýrslugerð, greiningar og skilgreining árangursmælinga.

  • Eftirfylgni með rammasamningum og öðrum innkaupasamningum.

  • Faglegur stuðningur og ráðgjöf til starfsstöðva.

  • Þátttaka í þróun og samræmingu innkaupaferla og umbótaverkefna.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af opinberum innkaupum er kostur.

  • Góð greiningarhæfni, hæfni til að vinna með gögn og setja fram rökstuddar niðurstöður og tillögur.

  • Viðskiptalegur skilningur og kostnaðarvitund

  • Góð tölvufærni, Excel kunnátta og reynsla af innkaupakerfum.

  • Framúrskarandi þjónustulund, samskipta- og skipulagshæfni og jákvætt hugafar.

  • Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins og veitir heilbrigðisþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu fagstétta og víðtæku þverfaglegu samstarfi. Hjá stofnuninni starfa um 1.000 starfsmenn. 15 heilsugæslustöðvar tilheyra henni auk þess eru átta starfsstöðvar á sviði geðheilsu og átta aðrar sérþjónustur.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurrós Halldórsdóttir

Deildarstjóri innkaupastýringar

Tölvupóstur: sigurros.halldorsdottir@heilsugaeslan.is

Helgi Þorsteinsson

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs

Tölvupóstur: Helgi.Thorsteinsson@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í innkaupum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.09.2026

Umsóknarfrestur

13.10.2026