Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Almannavarnafulltrúi hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026

Almannavarnafulltrúi hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða verkefnisstjóra almannavarna (almannavarnafulltrúi). Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra.

Leitað er að öflugum, metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi til að leiða og samhæfa fjölbreytt verkefni á sviði almannavarna í umdæminu. Um er að ræða ábyrgðarmikið, krefjandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á frumkvæði, fagmennsku, samstarfshæfni og getu til að takast á við flóknar aðstæður. Að stöðu almannavarnafulltrúa standa auk embættisins, sveitarfélög umdæmisins og ISAVIA.

Almannavarnir eru einn af lykilþáttum í starfsemi embættisins. Á undanförnum árum hafa jarðhræringar, eldsumbrot og aðrar áskoranir reynt verulega á viðnámsþrótt samfélagsins á Suðurnesjum og undirstrikað mikilvægi öflugs viðbúnaðar, samhæfingar og samstarfs viðbragðsaðila og annarra hagaðila.

Almannavarnafulltrúi gegnir lykilhlutverki í skipulagningu, þróun og samhæfingu almannavarnastarfs í umdæminu í samstarfi við aðra starfsmenn embættisins og aðra hagaðila. Starfið felur meðal annars í sér gerð og viðhald viðbragðsáætlana, áhættumat, skipulagningu æfinga og fræðslu ásamt víðtæku samstarfi við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki og viðbragðsaðila.

Almannavarnafulltrúi er tengiliður embættisins við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og tekur þátt í starfi almannavarnanefnda umdæmisins.

Lögreglan á Suðurnesjum er framsækin þjónustustofnun þar sem áhersla er lögð á mannauð, fagmennsku og traust. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhersla er lögð á góða þjónustu við nærsamfélagið og aðra sem fara um umdæmið, öfluga löggæslu, almannavarnir og að tryggja lögmæta umferð um landamæri Íslands. Hjá embættinu starfa um 220 manns í fjölbreyttum og krefjandi störfum á þremur starfsstöðvum.

Gildi embættisins eru fagmennska, heiðarleiki og traust.

Um er að ræða fullt starf og er gert ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. janúar 2027 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning, samhæfing og þróun almannavarnastarfs í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum, þar á meðal á Keflavíkurflugvelli.

  • Umsjón með gerð, endurskoðun, uppfærslu og prófun viðbragðsáætlana.

  • Umsjón með áhættugreiningu, áhættumati og mati á viðbúnaði og viðnámsþrótti samfélagsins.

  • Skipulagning og framkvæmd almannavarnaæfinga, þjálfunar og fræðslu í samstarfi við viðbragðsaðila og aðra hagaðila.

  • Samstarf og samhæfing við sveitarfélög, almannavarnanefndir, stofnanir, fyrirtæki og aðra aðila sem gegna hlutverki í almannavörnum.

  • Þátttaka í starfi aðgerðastjórnar almannavarna og öðrum verkefnum tengdum viðbrögðum við neyðarástandi.

  • Fræðsla, upplýsingamiðlun og forvarnir til að efla almannavarnavitund og viðbúnað íbúa, fyrirtækja og stofnana.

  • Önnur verkefni á sviði almannavarna samkvæmt ákvörðun lögreglustjóra.

Við mat á umsækjendum verður meðal annars horft til starfsreynslu, faglegra hæfileika, samskiptahæfni og getu til að sinna verkefnum starfsins við krefjandi aðstæður.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi eða öflug sí- og endurmenntun á sviðinu er æskileg.

  • Góð þekking á almannavarnakerfinu, skipulagi þess og hlutverki viðbragðsaðila er skilyrði.

  • Reynsla af samstarfi og samhæfingu viðbragðsaðila er skilyrði.

  • Reynsla af verkefnastjórnun, áætlanagerð eða skipulagningu viðbúnaðar og viðbragða, þ.m.t. gerð viðbragðsáætlana er skilyrði,

  • Reynsla af skipulagningu og framkvæmd æfinga eða þjálfunar viðbragðsaðila er skilyrði.

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp og viðhalda traustu samstarfi.

  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.

  • Hæfni til að greina flóknar aðstæður, forgangsraða verkefnum og taka ákvarðanir undir álagi.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til starfsins.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að viðkomandi varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996.

Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisáætlun lögreglu.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.

Sækja skal um stöðuna með rafrænum hætti á vef Starfatorgs, www.starfatorg.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Kristín Pálsdóttir

Lögreglustjóri

Tölvupóstur: mkp01@logreglan.is

Sími: 4442200

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Almannavarnafulltrúi hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026