Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlögregluþjónn - Rannsóknarsvið
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Yfirlögregluþjónn - Rannsóknarsvið
Auglýst er laus til umsóknar skipun til fimm ára í embætti yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Um spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra.
Yfirlögregluþjónn fer fyrir rannsóknarsviði en hlutverk sviðsins er að sinna rannsóknum flókinna, viðamikilla sakamála þar sem m.a. getur þurft að leiða saman hóp sérfræðinga og afla gagna víða. Um getur verið að ræða mál sem koma til með kærum, að frumkvæði starfsfólks deildarinnar, með tilkynningum frá öðrum lögregluliðum, innlendum sem erlendum eða með öflun upplýsinga eftir formlegu kerfi. Undir sviðið heyra kynferðisbrotadeild, rannsóknardeild skipulagðra og alvarlegra brota, rannsóknardeild fjármunabrota og peningaþvættis og deild sértækra rannsóknaraðferða.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni yfirlögregluþjóns eru í samræmi við 5. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglu, þ.á.m. þátttaka í áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningu embættisins, eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé framfylgt, stjórn og ábyrgð á tilteknum verkefnum sem honum eru falin og krefjast sérstakrar þekkingar, þjálfunar eða menntunar. Í starfinu felst meðal annars:
Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi rannsóknarsviðs embættisins.
Ábyrgð á framkvæmd rannsókna og annarra verkefna á rannsóknarsviði.
Þátttaka í áætlangerð, skipulagningu og markmiðasetningu embættisins og tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið.
Samstarf og samráð með innlendum og erlendum samstarfsaðilum.
Almennt fyrirsvar og bein samskipti við ráðuneyti, önnur embætti, stofnanir og fjölmiðla um verkefni rannsóknarsviðs og annarra deilda í samráði við lögreglustjóra.
Seta í framkvæmdarstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu en aðrar hæfniskröfur eru auk þess:
Yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu.
Farsæl reynsla af stjórnun innan lögreglu.
Mikil og fjölbreytt reynsla af stjórnun viðamikilla lögreglurannsókna.
Rekstrarþekking og/eða reynsla.
Framúrskarandi forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni.
Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, upplýsingar um umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu. Í umsókn skulu enn fremur koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu af stjórnun, 3) reynslu af stjórnun stórra og umfangsmikilla lögreglurannsókna 4) upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði, 5) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf yfirlögregluþjóns.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.
Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlögregluþjónn - Rannsóknarsvið
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026