Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

10.11.2026

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir áhugasömum hjúkrunarfræðingi í starf skólahjúkrunar. Um er að ræða 40-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að starfa með börnum og taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar. Hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi starfsvettvangi.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólaheilsugæsla.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda ásamt fræðslu og forvarnarstarfi. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Skólahjúkrun er hluti af heilsugæslunni og er markmið heilsuverndar grunnskólabarna að efla heilbrigði þeirra og stuðla að vellíðan. Skólahjúkrunarfræðingur myndi jafnframt koma að þróun starfs tengiliðar skv. Farsældarlögum sem snýr að samhæfingu fyrsta stigs þjónustu við börn og fjölskyldur. Hlutverk tengiliðar er að veita börnum og foreldrum almenna þjónustu í þágu farsældar barna.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi

  • Reynsla af skólahjúkrun æskileg

  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun kostur

  • Þekking á réttindum barna

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Ketils Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Emilía Petra Jóhannsdóttir

Tölvupóstur: emilia.p.johannsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6100

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

10.11.2026