
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnámsstöður í myndgreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Sérnámsstöður í myndgreiningu
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til þriggja ára í myndgreiningu. Sérnámið byggir á marklýsingu European Society of Radiology og er framgangsmat unnið samkvæmt þeirra forskrift og í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið er viðurkennt og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins. Sérnám fer fram á Landspítala.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027 en gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar hjá þeim umsækjendum sem eru að klára sérnámsgrunn á Landspítala verði beint í kjölfarið af honum. Ef semja á um orlof þar á milli er það gert í samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.
Sjá kynningarmyndband.
Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna og nám á deildum myndgreiningarþjónustu ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
Þátttaka í fræðslu og hermikennslu
Hæfniskröfur
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
Íslenskt lækningaleyfi
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsækjendum er bent sérstaklega á að kynna sér marklýsingu sérnáms og reglugerð 856/2023.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf
Mögulega umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Starfsferilskrá
Kynningarbréf með persónulegum markmiðum umsækjenda varðandi starfið auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.
Tilgreind reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt yfirliti yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að.
Staðfesting um lok sérnámsgrunns eða áætluð lok ef því er ekki nú þegar lokið. Læknar sem lokið hafa námi erlendis og ætla að fá sérnámsgrunn metinn þurfa að senda erindi á kennsluráð sérnámsgrunns á Íslandi ( sendist á formann kennsluráðsins, Ingu Sif Ólafsdóttur, ingasif@landspitali.is) og fá staðfestingu þess efnis að þeirra nám sé sambærilegt íslenska sérnámsgrunnsárinu.
Val á umsækjanda byggist á heildstæðu mati á menntun, reynslu og hæfni, með hliðsjón af innsendum gögnum, viðtölum og eftir atvikum mat á hæfni við úrlausn tilfella. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum frá ráðningum eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérnámslæknir, læknir, læknir með lækningaleyfi, almennur læknir
Tungumálahæfni: Íslenska 3,5, enska 3/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Lilja Briem Óladóttir
Tölvupóstur: gudrunlo@landspitali.is
Margrét Dís Óskarsdóttir
Tölvupóstur: margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnámsstöður í myndgreiningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026