Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Almennir læknar - Hefur þú augastað á augnlækningum?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026

Almennir læknar - Hefur þú augastað á augnlækningum?

Við sækjumst eftir almennum læknum sem hafa áhuga á sérfræðinámi í augnlækningum. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða tímabundið starf í 6-12 mánuði samkvæmt nánara samkomulagi. Tvær stöður eru í boði.

Ekki er um að ræða sérnámsstöður, en undirbúningur hlutasérnáms í augnlækningum á Íslandi stendur yfir.

Við augnlækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjálfun í augnlækningum með þátttöku í klínísku starfi á göngu- og legudeild augndeildar auk bakvakta

  • Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna

  • Kennsla kandídata, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á

  • Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum

Hæfniskröfur

  • Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein

  • Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega

  • Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg

  • Vilji til virkrar þáttöku í teymisvinnu skilyrði. Reynsla og þjálfun af teymisvinnu kostur

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Í umsóknareyðublaðið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf

  • Mögulega umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Starfsferilsskrá

  • Vottað afrit af prófskírteini og starfsleyfi

  • Staðfestingu um áætluð lok sérnámsgrunns ef því er ekki nú þegar lokið.

Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum eftir því sem við á. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir með lækningaleyfi, almennur læknir, læknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gunnar Már Zoéga

Tölvupóstur: gunnarmz@landspitali.is

Sími: 825 5015

Jóhann Ragnar Guðmundsson

Tölvupóstur: johannrg@landspitali.is

Sími: 823 7874

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Almennir læknar - Hefur þú augastað á augnlækningum?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.09.2026

Umsóknarfrestur

28.09.2026