Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.10.2026

Umsóknarfrestur

28.10.2026

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun

Við leitum að metnaðarfullum og öflugum leiðtoga með brennandi áhuga á heilbrigðis- og upplýsingatækni til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á Landspítala.

Heilbrigðistækni er hluti af einingunni stafræn framþróun sem tilheyrir rekstrar- og mannauðssviði Landspítala og ber ábyrgð á öflun, framþróun og rekstri heilbrigðistæknilausna Landspítala. Starfsmenn sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum rekstri um 11.000 lækninga- og rannsóknarstofutækja, 300 hugbúnaðarkerfa, öflun og innleiðingu nýrra tækja og kerfa ásamt því að sinna ráðgjöf til klínískra deilda um tækninýjungar og framþróun á sviði heilbrigðistækni.

Á stafrænni framþróun starfa um 35 starfsmenn. Markmið okkar er að styðja við þróun heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar og að veita framúrskarandi þjónustu við klíníska starfsemi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf, verkefnastjórn og greiningarvinna fyrir klíníska starfsemi Landspítala á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni

  • Öflun og innleiðing lækningatækja og hugbúnaðarkerfa, þ.á.m. útboð, verðfyrirspurnir og samningagerð

  • Verkefni tengd framþróun og rekstri lækningatækja og hugbúnaðarkerfa

  • Verkefni tengd þarfagreiningu, vali, uppsetningu og innleiðingu lækningatækja, hugbúnaðarkerfa og ferla á nýjum spítala

  • Náin samvinna og ráðgjöf við notendur á sviði heilbrigðistækni, lækningatækja og hugbúnaðarlausna á spítalanum

  • Aðkoma að verkefnum tengdum Nýjum Landspítala

Hæfniskröfur

  • Leiðtoga- og samskiptahæfni

  • Drifkraftur, sjálfstæði og ástríða fyrir verkefninu

  • Framhaldsnám í verkfræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi

  • Nám í heilbrigðisverkfræði er kostur

  • Þekking og reynsla af verkefna- og vörustjórnun er kostur

  • Marktæk reynsla af heilbrigðistæknistörfum er kostur

  • Góð færni í ensku og íslensku, bæði í ræðu og riti

  • Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði

  • Önnur reynsla sem nýtist í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkefnastjóri, vörustjóri, heilbrigðistækni

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragna Sif Þórarinsdóttir

Tölvupóstur: ragnast@landspitali.is

Sigrún Eyjólfsdóttir

Tölvupóstur: sigruney@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.10.2026

Umsóknarfrestur

28.10.2026