
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæsluritari - Heyrnar og talmeinastöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Heilsugæsluritari - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða heilsugæsluritara til starfa hjá Heyrnar og talmeinastöð (HT). Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Við leitum af öflugum heilsugæsluritara til starfa í fjölbreytt verkefni. Starfið felur meðal annars í sér almenn skrifstofustörf, skráningu gagna, umsjón með tímabókunum skjólstæðinga, skjalavörslu og samskipti við lækna og aðra samstarfsaðila. Starfið krefst góðrar skipulagshæfni, nákvæmni og þjónustulundar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skráir gögn s.s. tilvísanir og vottorð í sjúkraskrárkerfi
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun rannsóknarniðurstaðna, læknabréfa, frágangi gagna o.fl.
Umsjón með tímafjölda/dagskrá í móttöku
Aðstoðar við móttöku nýrra starfsmanna
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga
Aðstoðar móttökuritara í móttöku
Ýmis önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi.
Reynsla af ritarastarfi æskileg.
Reynsla af Sögukerfi kostur
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Mjög góð skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
Góð almenn enskukunnátta er æskileg
Góð færni í a.m.k. einu norðurlandamáli æskileg (Dan, Sæn, Nor).
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pálmey Harðardóttir
Heilsugæsluritari
Tölvupóstur: palmey.hardardottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6500

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæsluritari - Heyrnar og talmeinastöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026