Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Leiðbeinandi við hófhirðu og járningar

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

15.10.2026

Umsóknarfrestur

26.10.2026

Leiðbeinandi við hófhirðu og járningar

Laust er til umsóknar 80% starf leiðbeinanda við hófhirðu og járningar við Hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum. Starfsstöð er við Háskóla Íslands á Hólum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón, skipulag og kennsla bóklegra og verklegra námskeiða í járningum og hófhirðu.

  • Uppbygging og þróun náms og námsefnis í hófhirðu og járningum.

  • Framkvæmd og mat inntökuprófa sem og bóklegra og verklegra prófa.

  • Umsjón, eftirlit og skráning með hófhirðu og járningum hrossa á vegum Háskóla Íslands á Hólum.

  • Járningar og ábyrgð á járningaaðstöðu, tilheyrandi búnaði og öryggismálum aðstöðunnar.

  • Utanumhald innkaupa og notkunar á vörum og þjónustu í samráði við deildarforseta.

Hæfniskröfur

  • Alþjóðlega viðurkennt járningapróf.

  • Starfsreynsla við hófhirðu og járningar.

  • Góð færni í umgengni við hross.

  • Reynsla af kennslu, leiðsögn, þróun náms og gerð kennsluefnis í járningum og hófhirðu er æskileg.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta. Kunnátta í þýsku og norðurlandamálum er kostur.

  • Þekking og reynsla af starfi með fleiri hestakynjum en því íslenska er kostur.

  • Alþjóðleg reynsla af starfi við hófhirðu og járningar og samstarfi á vettvangi EFFA er kostur.

  • Góð samstarfs- og samskiptafærni.

  • Góð almenn tölvufærni.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Víkingur Þór Gunnarsson

Deildarstjóri Hestafræðideildar

Tölvupóstur: vikingur@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Leiðbeinandi við hófhirðu og járningar

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

15.10.2026

Umsóknarfrestur

26.10.2026