Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hringrásarhagkerfinu og úrgangsmálum
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Sérfræðingur í hringrásarhagkerfinu og úrgangsmálum
Laust er til umsóknar starf sérfræðings á sviði umhverfisgæða í teymi hringrásarhagkerfis. Helstu verkefni sérfræðingsins munu felast í stjórnsýslu úrgangsmála, úrgangsforvörnum og innleiðingu stefnu stjórnvalda í hringrásarmálum. Starfið krefst mikilla samskipta við stofnanir ríkis og sveitarfélaga og einnig við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir, hagaðila innanlands og almenning.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórnsýsla úrgangsmála, stuðningur við sveitarfélög, ríki og fyrirtæki á þessu sviði
Greiningar á EES gerðum og vinna tengd innleiðingu regluverks á sviði hringrásarmála
Þátttaka í innleiðingu stefnunnar Í átt að hringrásarhagkerfi og Evrópuverkefni (Life Circle) tengdu hen
Stuðningur við úrgangstölfræði og skýrsluskil
Stuðningur vegna annara verkefna teymis um hringrásarmál, svo sem miðlun og fræðslu
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Menntun á sviði opinberrar stjórnsýslu eða lögfræði er kostur
Menntun eða reynsla á sviði náttúruvísinda er kostur
Þekking og/eða reynsla af vinnu við hringrásarhagkerfi, úrgangsstjórnsýslu og miðlun er kostur
Reynsla af því að starfa í teymi er kostur
Geta til að sýna frumkvæði
Hæfni til að nálgast verkefni skipulega og reynsla af verkefnastjórn og umbótastarfi
Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Spennandi verkefni og gott vinnuumhverfi
Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Verkefni stofnunarinnar eru fjölbreytt og starfsumhverfið er metnaðarfullt. Við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á stöðugar umbætur, stafræna þróun og miðlun. Umhverfis- og orkustofnun leggur áherslu á heilsu, öryggi og vellíðan og góð skilyrði fyrir starfsfólk til að þróast og eflast í starfi. Starfsaðstaða er víða í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi og við viljum hlýlegt andrúmsloft fyrir allt starfsfólk. Við erum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Sjá nánari upplýsingar um Umhverfis- og orkustofnun á uos.is.
Starfsstöðvar kringum landiðStarfsstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar verða frá janúar 2027 á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi, Reykjanesi, Reykjavík, Melahverfi, Bolungarvík og Sauðárkróki. Starfsfólk okkar getur valið starfsstöð. Gott vinnuumhverfi er okkar markmið, á öllum starfsstöðvum.Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Lilja Ólafsdóttir sviðsstjóri, en Þorbjörg Sandra Bakke teymisstjóri veitir einnig nánari upplýsingar um starfið auk Þóru Margrétar Pálsdóttur Briem mannauðsstjóra í síma 569 6000. Umsóknarfrestur er til 6. september.
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.
ATH! Einungis er tekið við umsóknum á 50skills en ekki í gegnum Starfatorg.
Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hringrásarhagkerfinu og úrgangsmálum
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026