
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Næringarfræðingur á næringarstofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.09.2026
Umsóknarfrestur
09.10.2026
Næringarfræðingur á næringarstofu
Næringarstofa Landspítala auglýsir lausar þrjár stöður næringarfræðinga frá 1. janúar 2027 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%, nema um annað sé samið.
Á Næringarstofu starfar öflugur hópur næringarfræðinga í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir á flestum starfseiningum spítalans. Þar er veitt sérhæfð næringarmeðferð samkvæmt Nutrition Care Process (NCP) fyrir sjúklinga á bráðamóttökum, legudeildum og göngudeildum Landspítala. Markvisst er unnið að umbótum og þróun þjónustunnar.
Öflugt rannsóknastarf fer fram á Næringarstofu í samstarfi við háskóla og stofnanir innanlands sem utan, auk þess sem boðið er upp á starfsþjálfun í klínískri næringarfræði.
Við leitum að metnaðarfullum næringarfræðingum með góða skipulags- og samskiptahæfni sem hafa áhuga á fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og spennandi þverfaglegu starfsumhverfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf
Þátttaka í teymisvinnu
Gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur og endurskoðun
Þátttaka í faglegu gæðastarfi Næringarstofu
Leiðsögn nemenda í klínísku námi
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem næringarfræðingur
Reynsla af klínískri vinnu á legudeildum spítala er skilyrði
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, næringarfræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Áróra Rós Ingadóttir
Tölvupóstur: aroraros@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Næringarfræðingur á næringarstofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.09.2026
Umsóknarfrestur
09.10.2026