
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
16.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026
Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sauðárkrókur
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir jákvæðum og þjónustulunduðum sjúkraliða/ sjúkraliðanema á hjúkrunardeild. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, öryggi, virðingu og góða þjónustu. Ráðningartími og starfshlutfall er skv. samkomulagi.
Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.
Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira.
Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila
Eftirlit með líðan íbúa og miðlun mikilvægra upplýsinga til hjúkrunarteymis
Skráning og meðferð upplýsinga samkvæmt verklagsreglum og gæðaviðmiðum
Þátttaka í teymisvinnu
Stuðla að vellíðan, öryggi og virðingu skjólstæðinga
Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og umbótaverkefnum eftir því sem við á
Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ staðfesting á námi fyrir nema
Reynsla af umönnunar er kostur
Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
Áhugi á að starfa með fólki
Áreiðanleiki og sveigjanleiki
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf á íslensku ásamt afriti af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is
Sími: 432 4200

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði/ sjúkraliðanemi - HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
16.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026