Þjónustuaðili
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri Stafræns Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
13.11.2026
Framkvæmdastjóri Stafræns Íslands
Vilt þú leiða Stafrænt Ísland?
Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsir laust til umsóknar nýtt embætti framkvæmdastjóra Stafræns Íslands. Leitað er að öflugum, framsýnum og umbótasinnuðum stjórnanda sem hefur metnað fyrir stafrænni þjónustu og upplýsingatækni auk reynslu og hæfni til að leiða hóp fólks í gegnum breytingar.
Um er að ræða einstakt tækifæri til að móta og byggja upp nýja ráðuneytisstofnun sem mun gegna lykilhlutverki í stafrænni þróun og upplýsingatækni ríkisins, aukinni nýtingu gagna og innleiðingu gervigreindar.
Framkvæmdastjóri mun leiða uppbyggingu og þróun stofnunarinnar og gefst tækifæri til að móta starfsemi hennar, áherslur, skipulag og framtíðarsýn.
Um stofnunina
Stofnunin tekur til starfa 1. janúar 2027 og verður hún starfrækt sem ráðuneytisstofnun á grundvelli heimildar í 17. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands. Mun hún sameina núverandi starfsemi Verkefnastofu um Stafrænt Ísland og upplýsingatækniverkefni sem hingað til hafa verið á ábyrgð Umbru - þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins. Með nýju skipulagi verður skapaður öflugri grundvöllur fyrir áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu, upplýsingatæknirekstur og skilvirkari opinbera þjónustu. Framkvæmdastjóri er embættismaður og ber ábyrgð á að stofnunin starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem fjármála- og efnahagsráðherra setur. Stofnunin heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið, undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móta og innleiða stefnu, framtíðarsýn og tryggja skýra forgangsröðun.
Forysta í að byggja upp og leiða afkastamikinn hóp sérfræðinga og efla menningu sem byggir á samvinnu, ábyrgð og stöðugum umbótum.
Ábyrgð á daglegum rekstri.
Stuðla að árangursríkri teymisvinnu og góðum samskiptum við ráðuneyti, opinbera aðila og aðra hagaðila.
Miðla stefnu, sýn og áherslum stofnunarinnar á opinberum vettvangi og tryggja öflugt upplýsingaflæði.
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á starfssviði stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist i starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun, breytingastjórnun og innleiðingu umbóta.
Leiðtogahæfni og færni í að skapa liðsheild og leiða fólk til árangurs.
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni auk getu til að ávinna traust ólíkra hagsmunaaðila.
Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og drifkraftur til að hrinda ákvörðunum í framkvæmd.
Yfirgripsmikil reynsla af þróun og rekstri stafrænnar þjónustu og upplýsingatækni, innleiðingu gervigreindar og öryggismálum.
Þekking á samningastýringu, innkaupum og samstarfi við birgja.
Þekking á opinberri stjórnsýslu og starfsumhverfi hins opinbera er kostur.
Hæfni til tjáningar á íslensku og ensku í ræðu og riti. Kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku. Í kynningarbréfinu skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar, hæfni umsækjanda til starfsins og þeim árangri sem viðkomandi hefur náð í fyrri störfum. Við mat á umsækjendum verður einnig horft til stjórnendastefnu ríkisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Fjármála- og efnahagsráðherra skipar þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embættið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Íris Huld Christersdóttir
sérfræðingur á skrifstofu stjórnunar og umbóta
Tölvupóstur: iris.christersdottir@fjr.is
Þjónustuaðili
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri Stafræns Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
13.11.2026