Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Bókavörður, almenn þjónusta

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.11.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026

Bókavörður, almenn þjónusta

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn leitar að starfsmanni í fullt starf á Þjónustusviði safnsins.Helstu verkefni eru almenn upplýsingagjöf, afgreiðsla og þjónusta í þjónustuborðum. Útlán og uppröðun safnkosts ásamt umsjón með vinnusvæðum og umgengni á safninu. Unnið er á vöktum. Yfir vetrarmánuðina er hluti vinnutíma utan dagvinnumarka en safnið er opið fram á kvöld og um helgar frá ágústlokum og fram í maí. Sumaropnun er frá 9-17.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla, upplýsingagjöf og þjónusta

  • Umsjón með lessvæðum

  • Útlánaþjónusta

  • Uppröðun safnkosts

Hæfniskröfur

  • Framhaldsskólapróf

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Leitað er að einstaklingi sem er stundvís og samviskusamur, þjónustulipur og góður í samskiptum. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru greidd skv. kjarasamningum Sameykis og ríkisins. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525-5600 | www.landsbokasafn.isÞekkingarveita í allra þágu

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Tryggvadóttir

sviðsstjóri þjónustusviðs

Tölvupóstur: gudrun.tryggvadottir@landsbokasafn.is

Sími: 5255600

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Bókavörður, almenn þjónusta

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.11.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026