
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Laust er til umsóknar starf sérhæfðs starfsmanns á meinafræðideild Landspítala frá 1. desember 2026, eða samkvæmt samkomulagi. Starfshlutfall er 100%, eða eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir lausnamiðuðum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og er tilbúinn að vinna í krefjandi starfsumhverfi með frábæru starfsfólki.
Á meinafræðideildinni eru starfandi rúmlega 70 einstaklingar, þar á meðal læknar, lífeindafræðingar, náttúrufræðingar, skrifstofumenn og sérhæft starfsfólk. Þar fara meðal annars fram sjúkdómsgreiningar, rannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í vefjarannsóknum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoð við krufningar og almenn vinna í krufningarsal
Úrskurður og meðhöndlun vefjasýna á rannsóknarstofu meinafræðinnar
Aðstoð við lækna og lífeindafræðinga á rannsóknarstofu meinafræðinnar
Hæfniskröfur
Stúdentspróf skilyrði og önnur heilbrigðismenntun kostur
Reynsla af störfum á rannsóknastofu er kostur
Nákvæmni í vinnubrögðum
Góð skipulagshæfni og góð samskiptahæfni
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, rannsóknarvinna, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Sigrún Gunnarsdóttir
Tölvupóstur: helgashe@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026