
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirmatsveinn - Þórunn Þórðadóttir
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Yfirmatsveinn - Þórunn Þórðadóttir
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða aðila í ótímabundið starf yfirmatsveins á rannsóknaskipið Þórunni Þórðadóttur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Matreiðsla til mjög ólíkra hópa
Pantanir og halda birgðastöðu í samræmi við áætlanir.
Rekstur stóreldhúss í samræmi við áætlanir.
Að tryggja að öll vinna í eldhúsi sé framkvæmd á öruggan og ábyrgan hátt.
Verkstýring og umsjón með þrifum á eldhúsi, kælum og matal.
Þátttaka í aðgerðum skipsins, samkvæmt fyrirmælum skipstjóra.
Þátttaka í æfingum og endurmenntun um borð og í landi.
Að vinna önnur þau störf er til falla samkvæmt fyrirmælum yfirmanna
Hæfniskröfur
Sveinspróf í matreiðslu.
Að minnstakosti 10 ára reynsla í matreiðslu til mjög ólíkra hópa, skilyrði.
Reynsla að rekstri stóreldhúss, skilyrði.
Að minnsta kosti 3 ára reynsla sjómennsku, skilyrði.
Lausnamiðaður við fjölbreyttar og oft krefjandi aðstæður, skilyrði.
Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
Góð íslenska og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjómannafélag Íslands hafa gert.
Umsókninni skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá - hámark 2. bls
Afrit af prófskírteinum (Bs, MS, doktorspróf og/eða annað sem á við)
Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.
Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra
Athugið:
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Stefán Eyfjörð Stefánsson
Tölvupóstur: stefan.stefansson@hafogvatn.is
Guðmundur Þ Sigurðsson
Tölvupóstur: gudmundur.th.sigurdsson@hafogvatn.is

Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirmatsveinn - Þórunn Þórðadóttir
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026