
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.10.2026
Umsóknarfrestur
04.11.2026
Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Ert þú að leita að spennandi starfi í tæknimálum?
Við erum að leita að tæknisinnuðum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund í tímabundið starf í deild rafrænnar þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Deildin heyrir undir svið fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón og eftirlit með vél- og hugbúnaði heilsugæslunnar
Stofnun og breytingar á notendum tölvukerfis HH, skipulagning og vandamálagreining
Aðstoð við notendur
Samskipti við sérfræðinga innan og utan stofnunar vegna tölvumála
Hæfniskröfur
Góð þekking á Microsoft notendahugbúnaði skilyrði
Þekking á Linux netþjónum kostur
Reynsla af rekstri tölvubúnaðar kostur
Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar
Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar
Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
Brennandi áhugi á tölvum og tækni
Mjög góð færni í íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.10.2026
Umsóknarfrestur
04.11.2026