Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í lungnalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.09.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026

Sérfræðilæknir í lungnalækningum

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í lungnalækningum. Starfið veitist frá 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi. Um fullt starf er að ræða en lægra starfshlutfall getur komið til greina samkvæmt nánara samkomulagi.

Við lungnalækningar starfar öflugt og metnaðarfullt teymi lækna sem sinnir fjölbreyttum verkefnum í góðu samstarfi við aðrar fagstéttir.

Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd sjúklinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við sjúklinga á legudeildum og gjörgæslu

  • Göngu- og dagdeildarþjónusta: Um er að ræða mjög fjölbreytt viðfangsefni. Meðal verkefna eru millivefssjúkdómar, erfiður astmi, greining lungnakrabbameina, lokastigs teppusjúkdómar, bráð- og langvinn öndunarbilun og meðferð með ytri öndunarvélum.

  • Inngrip: Berkjuspeglanir, brjóstholsástungur og áreynslupróf

  • Þátttaka í vaktþjónustu lungnalækna

  • Þátttaka í bráðaþjónustu á vegum almennra lyflækninga í samráði við yfirlækni lungnalækninga, þ.m.t. vaktþjónustu

  • Þátttaka í kennslu læknanema, sérnámsgrunnlækna og sérnámslækna

  • Þátttaka í rannsóknarstarfi

  • Þátttaka í öðrum verkefnum í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í lungnalækningum

  • Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum og lungnalækningum

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi heilbrigðisstarfsmanna

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Reynsla af kennslu og rannsóknum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérfræðilæknir, lungnalækningar, almennar lyflækningar, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sif Hansdóttir

Yfirlæknir lugnalækninga

Tölvupóstur: sifhan@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í lungnalækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.09.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026