
Þjónustuaðili
Landbúnaðarháskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í plöntulíffræði við Landbúnaðarháskóla Íslands/Assistant professor in plant biology
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2026
Umsóknarfrestur
20.11.2026
Lektor í plöntulíffræði við Landbúnaðarháskóla Íslands/Assistant professor in plant biology
Starf lektors í plöntulíffræði/líftækni við Landbúnaðarháskóla Íslands er laus til umsóknar.
Rannsóknir við Landbúnaðarháskóla Íslands beinast að nýtingu náttúruauðlinda á norðlægum slóðum og vill háskólinn efla kennslu, rannsóknir, og nýsköpun í líffræði og lífeðlisfræði plantna, frumulíffræði, líftækni og tengdum greinum
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur stundað rannsóknir á ræktun og kynbótum á bæði grösum og korni í áratugi við aðstæður á norðurslóðum. Mikil þörf er á að efla rannsóknir og nýsköpun á sviði líffræði plantna enn frekar og þá einnig á sviði líffræði þara og þörunga, með sérstakri áherslu á tengingu við rannsóknir á norðurslóðum
Gert er ráð fyrir að sá sem ráðinn verði í starfið byggi upp rannsóknarhóp og leiði innlend og alþjóðleg rannsóknarverkefni og að umsækjandi stundi rannsóknir á plöntum á landi og í sjó og efli tengsl við nýsköpun. Þá er gert er ráð fyrir að umsækjandi kenni og leiðbeini nemendum í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi.
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur aðstöðu til rannsókna á þessu sviði, tæknimenn, tækjabúnað, húsnæði og land fyrir tilraunir og háskólabú. Þá er unnið að undirbúningi nýrrar jarðræktarmiðstöðvar við háskólann sem mun efla enn frekar aðstöðu til kennslu og rannsókna.
Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) er mennta- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar, landnýtingar, umhverfisvísinda, skipulagsfræða og landslagsarkitektúrs. LBHÍ vinnur að sjálfbærri nýtingu auðlinda og hágæða landbúnaðarframleiðslu og leggur áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í allri sinni starfsemi. LBHÍ veitir BSc-, MSc- og PhD-gráður og býður upp á starfsnám í landbúnaði.
Starfið er innan fagdeildar Lífs og lands. Deildin skapar og varðveitir þekkingu á landbúnaðarvísindum sem nær yfir líffræðilega, tæknilega, hagfræðilega og vistfræðilega þætti bæði dýra- og plöntuframleiðslu í norðlægu umhverfi Íslands. Nýverið hófst samstarf við Breiðina á Akranesi og fleiri aðila um að efla þara- og þörungarækt.
///
Applications are invited for the position of Assistant Professor in Plant Biology/Biotechnology at the Agricultural University of Iceland. Candidates who meet the relevant qualification requirements may be appointed directly at the rank of Associate Professor or Professor.
Research at the Agricultural University of Iceland focuses on the utilization of natural resources that are relevant under boreal, alpine, arctic or subarctic conditions. The University seeks to strengthen research, education and innovation in plant biology, cell biology, biotechnology and related disciplines with special emphasis on arctic and sub-arctic regions.
The Agricultural University of Iceland has conducted research on the cultivation and breeding of grasses and cereals for decades. There is a substantial need to further strengthen research and innovation in plant sciences, including work on kelp and other algae.
The successful candidate will be expected to establish a research group and lead national and international research projects. They will conduct research on terrestrial and marine plants and strengthen links between research and innovation. Responsibilities will also include teaching and supervising students at undergraduate, master¿s and doctoral levels.
The Agricultural University of Iceland provides research infrastructure and support in this field, including technical staff, equipment, facilities, fields and land for experimental work, and university farms. Preparations are also underway for a new crop research centre at the University, which will further enhance facilities for teaching and research.
The Agricultural University of Iceland (AUI) is an educational and research institution specialising in agriculture, land use, environmental sciences, planning and landscape architecture. AUI promotes the sustainable use of resources and high-quality agricultural production, placing emphasis on environmental protection and sustainability throughout its activities. AUI awards BSc, MSc and PhD degrees and offers vocational training in agriculture.
The position is within the Faculty of Life and Land. The Faculty develops and preserves knowledge in agricultural sciences, encompassing the biological, technological, economic and ecological aspects of both animal and plant production in Iceland¿s northern environment. The University has recently established a collaboration with Breiðin in Akranes and other partners to advance the cultivation of seaweed and microalgae.
Helstu verkefni og ábyrgð
Byggja upp og leiða alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sviði líffræði og lífeðlisfræði plantna, líftækni og skyldum greinum, þ.m.t. á sviði þara og þörunga.
Birta ritrýndar vísindagreinar og afla alþjóðlegra rannsóknarstyrkja.
Koma á fót og leiða alþjóðlegt og innlent rannsóknarsamstarf.
Kenna og þróa námskeið í grunn- og framhaldsnámi.
Leiðbeina nemendum í grunn-, meistara- og doktorsnámi.
///
Develop and lead internationally recognised research in plant biolog and physiology, biotechnology and related disciplines, including research on seaweed and microalgae.
Publish peer-reviewed scientific papers and secure international research grants.
Establish and lead national and international research collaborations.
Teach and develop courses at undergraduate and postgraduate levels.
Supervise undergraduate, masters and doctoral students.
Hæfniskröfur
Doktorspróf í plöntulíffræði, frumulíffræði, líftækni eða tengdum greinum.
Þekking og reynsla af rannsóknum í plöntulíffræði og/eða tengdum greinum
Umsækjandi verður að hafa birt alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir.
Kennslureynsla á háskólastigi.
Skýr framtíðarsýn fyrir rannsóknir umsækjanda við háskólann.
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
Hæfni til að vinna úti á vettvangi við norðlægar aðstæður
///
A PhD in plant biology, cell biology, biotechnology or a related discipline.
Knowledge and experience in plant biology research and/or related fields.
A record of internationally recognised research publications.
Teaching experience at university level.
A clear vision for the candidate¿s future research at the University.
Ability to work independently and as part of a team.
Strong interpersonal and collaborative skills.
Hæfni til að vinna úti á vettvangi við norðlægar aðstæður.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, prófskírteini auk ritaskrár.
Samkvæmt reglum Landbúnaðarháskóla Íslands er rektor heimilt að veita framgang í stöðu dósents eða prófessors strax í kjölfar nýráðningar, uppfylli umsækjandi hæfniskröfur.
Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
///
Salary will be in accordance with the applicable collective agreement between the Minister of Finance and Economic Affairs and the relevant trade union.
Applications must include a CV, a cover letter, documentation of qualifications and work experience, and a list of publications.
Under the regulations of the Agricultural University of Iceland, the Rector may grant promotion to the rank of Associate Professor or Professor immediately following appointment, provided the candidate meets the relevant qualification requirements.
The Agricultural University of Iceland reserves the right to reject all applications.
All applicants will be notified once a hiring decision has been made.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landbúnaðarháskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í plöntulíffræði við Landbúnaðarháskóla Íslands/Assistant professor in plant biology
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2026
Umsóknarfrestur
20.11.2026