
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Langar þig að vinna á nýrri og spennandi deild þar sem þú færð tækifæri til að taka þátt í að móta þjónustuna og hafa áhrif á hvernig hún þróast? Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa með okkur á nýrri bráðamatsdeild. Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem vilja sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga, sem vilja áskoranir í starfi, vilja efla klíníska færni sína og verða framúrskarandi í mati og meðferð bráðveikra sjúklinga.
Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráðveikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks með öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem áherslan er á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans. Deildin er opin allan sólarhringinn og unnið er í vaktavinnu. Við bjóðum upp á sveigjanleika í starfi hvað varðar starfshlutfall og vinnuskipulag. Upphaf starfs er samkomulag.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga.
Taka virkan þátt í greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga í samstarfi við þverfaglegt teymi.
Þróun ferla og verkefna á nýrri deild.
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi.
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi.
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar.
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi.
Góð íslenskukunnátta er æskileg.
Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun,
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026