
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-60%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Ertu góð/góður í samskiptum og fljótur að læra og tileinka þér hlutina?
Heilbrigðisritari/ einstaklingur í skrifstofustarf óskast til starfa í Heru- sérhæfða líknarheimaþjónustu í Kópavogi.Á deildinni starfa um 20 hjúkrunarfræðingar ásamt læknum líknarþjónustunnar.
Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að læra og tileinka sér hlutina, með góða samskiptahæfni og á auðvelt með að vinna í teymi.
Um er að ræða dagvinnustarf 50-60%, sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala
Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi
Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og góð samskiptahæfni
Tölvufærni
Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
Góð íslensku kunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofumaður, skrifstofustarf, ritari, móttaka, símsvörun,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,
Staðsetning: Kópavogsbraut, 200 Kópavogur
Starfshlutfall er 50-60%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-60%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026