Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026
Þjónustufulltrúi
Laus er til umsóknar staða þjónustufulltrúa við embættið á aðalskrifstofunni á Blönduósi. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. desember n.k. eða sem næst því. Ráðning er ótímabundin með 6 mánaða reynslutíma.
Starf þjónustufulltrúa felst í fjölbreyttum verkefnum sem snúa m.a. að innheimtu sekta, sakarkostnaðar, meðlags og annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins, ásamt því að veita faglega leiðbeiningu og upplýsingar í síma og tölvupósti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við viðskiptavini og hagsmunaaðila, m.a. í síma og tölvupósti
Greining og úrvinnsla erinda viðskiptavina
Úthringingar
Vanskilainnheimta
Gerð greiðsluáætlana
Önnur tilfallandi verkefni sem sinnt er hjá embættinu.
Hæfniskröfur
Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi
Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Reynsla af innheimtustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi
Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir ríkri samstarfs- og skipulagshæfni, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum og getu til að vinna undir álagi. Einnig er krafa um að umsækjendur sýni frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og metnað í starfi og hafi hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum. Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu í fyrri störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn um starfið skal skila rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins og skulu fylgja:
Starfsferilskrá.
Upplýsingar um meðmælendur.
Stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda í starfið.
Afrit af prófskírteinum ef við á.
Þar sem verkefni embættisins tengjast náið störfum lögreglu er gert ráð fyrir að umsækjendur veiti embættinu, með skýrum hætti í umsókn sinni, heimild til uppflettingar í málaskrárkerfi lögreglu, LÖKE.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar. Við mat á umsóknum verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvar og embættisins í heild.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þann 1. janúar 2027 tekur nýtt sameinað sýslumannsembætti til starfa. Starfsfólk núverandi embætta verður starfsfólk hjá hinu nýja embætti.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Erna Björg Jónmundsdóttir
deildarstjóri
Tölvupóstur: erna.bjorg.jonmundsdottir@syslumenn.is
Sími: 458-2521
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026