
Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi óskast
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
12.11.2026
Þroskaþjálfi óskast
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi auglýsir laust til umsóknar 80% starf þroskaþjálfa.
Starfið felst í að styðja við nám, þjálfun, hæfingu og þátttöku nemenda með fjölbreyttar stuðningsþarfir, meðal annars vegna líkamlegrar, andlegrar og/eða félagslegrar færniskerðingar.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli á Akranesi sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru um 500 og starfsfólk skólans 70 manns. Við skólann er starfrækt öflug starfsbraut með nemendum sem þurfa sérstök úrræði vegna námserfiðleika, félagslegra aðstæðna, fötlunar eða þroskafrávika.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita nemendum með fötlun einstaklingsmiðaðan stuðning og þjálfun
Annast umsýslu og aðlögun hjálpartækja eftir þörfum
Eiga samstarf við kennara, annað starfsfólk og aðra sem koma að námi og velferð nemenda
Hæfniskröfur
Starfsleyfi sem þroskaþjálfi
Fagleg þekking, færni og áhugi á starfi með nemendum með fjölbreyttar stuðningsþarfir
Lipurð í mannlegum samskiptum og góð samstarfshæfni
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Þroskaþjálfafélag Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins
Ferilskrá
Afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Öllum umsóknum verður svarað.
Við ráðningu er tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA.Ath. Verkefnum þroskaþjálfa er sinnt á starfstíma skólans skv. skóladagatali.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
FVA
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi óskast
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
12.11.2026