Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður á Höfn

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.09.2026

Umsóknarfrestur

24.09.2026

Skrifstofumaður á Höfn

Laust er til umsóknar starf skrifstofumanns við embætti Sýslumannsins á Suðurlandi. Um er að ræða almennt skrifstofustarf sem staðsett er á starfsstöð embættisins á Höfn í Hornafirði. Starfið heyrir undir sýslumann.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð

Á Höfn er ein fjögurra starfsstöðva embættisins þar sem fram fer afgreiðsla almennra erinda auk umsjónar með málefnum dánarbúa. Helstu verkefni starfsmanns lúta að framangreindum verkefnum auk símsvörunar á embættinu og þjónustu við viðskiptavini sem leita á starfsstöð, þ.m.t. gjaldkerastörf.

Embætti sýslumanns á Suðurlandi er stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem reist er á gömlum grunni og annast fjölþætt viðfangsefni framkvæmdarvalds ríkisins í héraði. Áherslur vinnustaðarins byggja á góðri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild. Horft verður til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvarinnar og embættisins í heild.

Hæfniskröfur

  • Hæfni á 3. þrepi íslenska hæfnirammans (stúdentspróf, aðfaranám að háskólanámi o.fl.).

  • Háskólamenntun er kostur.

  • Góð almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér nýjungar á því sviði.

  • Góð almenn íslenskukunnátta í ræðu og riti.

  • Góð almenn enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.

  • Jákvæðni, góð þjónustulund og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.

Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir ríkri samstarfs- og skipulagshæfni, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum og getu til að vinna undir álagi. Einnig er krafa um að umsækjendur sýni umbótahugsun, frumkvæði, sjálfstæði og metnað í starfi og hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum. Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00 -15:12. Umsókn um starfið þurfa að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um meðmælendur auk annarra atriða sem máli kunna að skipta.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningu verður tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Þann 1. janúar 2027 teku nýtt sameinað sýslumannsembætti til starfa. Starfsfólk núverandi embætta verður starfsfólk hjá hinu nýja embætti.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Lilja Ragnarsdóttir

settur sýslumaður

Tölvupóstur: anna.lilja.ragnarsdottir@syslumenn.is

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður á Höfn

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.09.2026

Umsóknarfrestur

24.09.2026