
Þjónustuaðili
Menntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsfræðikennari í Menntaskólanum á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
75-90%
Starf skráð
06.11.2026
Umsóknarfrestur
20.11.2026
Félagsfræðikennari í Menntaskólanum á Akureyri
Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir kennara í afleysingu í félagsfræði á vorönn 2027. MA er framsækinn skóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun. Skólinn starfar undir kjörorðunum virðing - bjartsýni - seigla - árangur. Í MA er öflugt þróunarstarf og góður starfsandi. Ef þú vilt takast á við krefjandi kennarastarf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og námsmat, faglegt samstarf, umsjón með nemendum og starfsþróun.
Hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi grein og leyfisbréf.
Leitað er að einstaklingum sem eru skapandi í starfi, færir í samskiptum, sýna frumkvæði og eru tilbúnir til að taka þátt í þróun kennslu og náms samkvæmt skólasýn MA.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr.92/2008 og þarf nýtt sakavottorð að fylgja umsókn.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2027 - 31. maí 2027.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 75-90%
Umsóknarfrestur er til og með 20.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Menntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsfræðikennari í Menntaskólanum á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
75-90%
Starf skráð
06.11.2026
Umsóknarfrestur
20.11.2026