
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
04.09.2026
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga Fossvogi
Laust er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings göngudeild skurðlækninga í Fossvogi.
Starfið sem um ræðir er tvískipt. Annars vegar fellur það undir hluta göngudeildar háls, nef- og eyrnalækninga og hins vegar undir innskriftarmiðstöð þar sem fræðsla og undirbúningur sjúklinga fyrir aðgerð fer fram.
Deildin er göngudeild háls-, nef-, og eyrnalækninga, lýtalækninga, æðaskurðlækninga og heila- og taugaskurðlækninga. Hér er einnig starfrækt innskriftarmiðstöð skurðdeilda, sáramiðstöð Landspítala og sérhæfðar hjúkrunarmóttökur.
Á deildinni starfar samheldinn hópur að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum. Starfsandinn á deildinni er mjög góður og við tökum vel á móti nýju starfsfólki.
Hér er tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing með faglega sýn og metnað sem hefur áhuga á að vinna í teymi en einnig sjálfstætt og af frumkvæði.
Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag. Starfstíminn er dagvinna.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingsmiðaða hjúkrunarmeðferð
Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og þróunarstarfi innan deildar
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Jákvætt viðmót og samskiptahæfni
Íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
04.09.2026