
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.09.2026
Umsóknarfrestur
30.09.2026
Lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stærðfræði og stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni lektorsins verða kennsla, rannsóknir og þróunarstarf á sviði stærðfræði og á sviði stærðfræðimenntunar. Starfið tilheyrir Deild faggreinakennslu en tilvonandi lektor mun einnig koma að kennslu í öðrum deildum sviðsins.
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla stærðfræði fyrir nemendur í kennaranámi á grunn- og framhaldsstigi
Rannsóknir á sviði stærðfræði og stærðfræðimenntunar
Leiðsögn með lokaverkefnum nemenda
Þátttaka í stjórnun námsbrautar og þróun námsleiða á sviði stærðfræði og stærðfræðimenntunar á Menntavísindasviði
Hæfniskröfur
Doktorspróf í stærðfræði
Reynsla af háskólakennslu í stærðfræði er æskileg
Þekking á stærðfræðimenntun eða kennslufræði stærðfræði er kostur
Reynsla af kennslu stærðfræði á öðrum skólastigum, grunnskóla og/eða framhaldsskóla er æskileg
Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi er kostur
Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Áhersla er lögð á að sá sem starfið hlýtur hafi góða færni í kennslu og rannsóknum, geti rökstutt áhuga sinn á stærðfræðimenntun og hafi skýra framtíðarsýn um hlutverk sitt við menntun stærðfræðikennara. Horft verður til þess að ráðningin falli sem best að aðstæðum og þörfum þeirra námsleiða sviðsins sem mennta stærðfræðikennara.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að þær nefndir sem um málið fjalla hafa lokið störfum.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í stærðfræði og stærðfræðimenntun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.09.2026
Umsóknarfrestur
30.09.2026