Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði í heimahjúkrun - Fjarðabyggð - Afleysing

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

05.10.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026

Sjúkraliði í heimahjúkrun - Fjarðabyggð - Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða til afleysingar í heimahjúkrun með aðalstarfsstöð í Neskaupstað. Starfshlutfall 80% og veitist starfið frá 15. nóvember 2026 til 31. ágúst 2027, með möguleika á framlengingu að þeim tíma loknum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn störf sjúkraliða í heimahjúkrun ásamt tilfallandi störfum. Um er að ræða vaktavinnu; morgun-, kvöld- og helgarvaktir. Aðalstarfsstöð er í Neskaupstað ásamt tilfallandi afleysingu í heimahjúkrun innan Fjarðabyggðar.

Hæfniskröfur

Íslensk sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta og ökuréttindi áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Þóra Óladóttir

Tölvupóstur: margret.oladottir@hsa.is

Ragnheiður Jara Rúnarsdóttir

Tölvupóstur: ragnheidur.j.runarsdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði í heimahjúkrun - Fjarðabyggð - Afleysing

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

05.10.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026