
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa á vöknun í Fossvogi.
Vöknun er frábær vinnustaður þar sem samvinna, fagmennska og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Nýtt starfsfólk fær einstaklingsmiðaða aðlögun og þjálfun með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Á vöknun starfa um 40 hjúkrunarfræðingar og 6 sjúkraliðar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum.
Vöknun hefur aðsetur á þremur stöðum, E6 í Fossvogi, 12A við Hringbraut og 23A á kvennadeild. Deild E6 þjónar börnum og fullorðnum eftir svæfingar og slævingar við skurðaðgerðir og önnur inngrip. Deildin er opin allan sólarhringinn, flestir sjúklingar koma eftir skipulagðar aðgerðir á dagvinnutíma en deildin tekur einnig á móti sjúklingum eftir bráðaaðgerðir á kvöldin, nóttunni og um helgar. Vöknun heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingshæfa hjúkrun samkvæmt markmiðum Landspítala
Skipuleggja þjónustu deildarinnar með það að markmiði að þarfir og öryggi sjúklings sé í öndvegi
Efla og endurmeta gæði hjúkrunar hverju sinni
Viðhalda árangursríku upplýsingaflæði til að tryggja samfellda hjúkrun og góða samvinnu starfsfólks
Efla ábyrgð og faglega þekkingu starfsfólks
Stuðla að góðu og hvetjandi vinnuumhverfi
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður
Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
Mjög góð íslenskukunnátta er áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 105 Reykavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026