Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í myndgreiningu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.10.2026

Umsóknarfrestur

28.10.2026

Sérfræðilæknir í myndgreiningu

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis á myndgreiningardeild Landspítala. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Upphaf starfa er samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Á myndgreiningardeild starfa á annað hundrað einstaklingar. Þar fer fram fjölbreytt rannsóknarstarfsemi í þágu þeirra sem nýta sér þjónustu Landspítala. Við leggjum ríka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki, skjólstæðingum sem og vinnustaðnum öllum auk góðra samskipta.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn sérfræðilæknisstörf á röntgendeild Landspítala

  • Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila

  • Kennsla læknanema og sérnámslækna og leiðsögn annarra heilbrigðisstarfsmanna

  • Vísindarannsóknir tengdar sérgreininni

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi

  • Þátttaka í vöktum sérfræðilækna

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í myndgreiningu

  • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla í myndgreiningu

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: Íslenska 2/5, enska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Stefán Kristjánsson

Tölvupóstur: stefank@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í myndgreiningu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.10.2026

Umsóknarfrestur

28.10.2026