
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður hestahalds og hesthúsa
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.10.2026
Umsóknarfrestur
15.10.2026
Umsjónarmaður hestahalds og hesthúsa
Laust er til umsóknar fullt starf umsjónarmanns hestahalds og hesthúsa við Hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum. Starfsstöð er við Háskóla Íslands á Hólum. Starfið er unnið á dagvinnutíma, auk þess sem gert er ráð fyrir vinnu þriðju hverja helgi. Einnig er skipulögð bakvakt.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með daglegum rekstri skólabús, hesthúsa og bújarðar þ.m.t. þrif og gegningar
Ábyrgð á hirðingu, heilbrigði og velferð hesta skólabúsins
Skipulagning daglegra verkefna og leiðsögn fyrir aðstoðarfólk og nemendur, meðal annars um hirðingu hrossa og umgengni
Umsjón með nýtingu lands, beitarstýringu, heybirgðum og viðhaldi girðinga
Umsjón með umhirðu og viðhaldi hesthúsa, vinnuvéla, tækja og búnaðar ásamt eftirfylgni með öryggisreglum
Aðstoð við rannsóknir og kennslu innan deildar og umsjón með aðföngum og innkaupum í samráði við næsta yfirmann
Hæfniskröfur
Menntun í búfræði, búvísindum, hestafræði eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af búrekstri og umhirðu hesta
Reynsla af landbúnaðarstarfi, starfi við smíðar eða af sambærilegum verkefnum er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Almenn tölvukunnátta
Skipulagshæfni og hæfni í samvinnu og mannlegum samskiptum
Ökuréttindi, aukin ökuréttindi og reynsla af notkun landbúnaðartækja er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Auður Inga Ingimarsdóttir
Tölvupóstur: audinga@hi.is
Víkingur Þór Gunnarsson
Tölvupóstur: vikingur@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður hestahalds og hesthúsa
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.10.2026
Umsóknarfrestur
15.10.2026