
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Launa- og rekstrarfulltrúi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026
Launa- og rekstrarfulltrúi
Barna- og fjölskyldustofa leitar að metnaðarfullum og nákvæmum einstaklingi í stöðu launa- og rekstarfulltrúa. BOFS er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður sem sinnir mikilvægum verkefnum í þágu velferðar barna og fjölskyldna um allt land.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs og verður viðkomandi einn af þremur launa- og rekstrarfulltrúum hjá stofnuninni. Starfið felur meðal annars í sér launavinnslu fyrir bæði dagvinnu- og vaktavinnufólk og krefst því góðrar þekkingar á ólíkum launa- og kjaratengdum þáttum. Um 100% starf er að ræða með fasta starfsstöð í Borgartúni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Launavinnsla.
Bókhald og reikningagerð.
Bókun og frágangur fylgiskjala vegna innkaupakorta.
Bókhaldsmerkingar og samþykktir reikninga.
Innkaup.
Samskipti við starfsfólk og viðskiptamenn
Önnur tilfallandi verkefni á fjármála- og mannauðssviði.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af sambærilegu starfi.
Reynsla af launavinnslu vaktavinnufólks er kostur.
Góð íslenskukunnátta.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Sveigjanleiki og hæfni til að aðlagast breytingum.
Frumkvæði og áhugi á að tileinka sér nýjar lausnir og aðferðir og þróa og bæta verkferla.
Hæfni til að sjá tækifæri til einföldunar, hagræðingar og aukinnar sjálfvirkni.
Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Jákvætt viðhorf og þjónustulund.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við úrvinnslu umsókna um starfið gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Sigurjónsdóttir
Framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs
Tölvupóstur: gudrun.sigurjonsdottir@bofs.is
Sími: 530-2600

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Launa- og rekstrarfulltrúi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026