Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur með ábyrgð á skrifstofustarfsemi - Heyrnar og talmeinastöð HH á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Heilbrigðisgagnafræðingur með ábyrgð á skrifstofustarfsemi - Heyrnar og talmeinastöð HH á Akureyri

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að drífandi einstakling í starf heilbrigðisgagnafræðings hjá Heyrnar og talmeinastöð (HT) með vinnustöð á Akureyri. Um er að ræða 100% ótímabundið starf þar sem megináhersla er á verkefni tengd heilbrigðisgagna vinnslu ásamt umsjón með skrifstofustarfsemi og þjónustu við skjólstæðinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.

Við leitum að jákvæðum, nákvæmum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og gott tölvulæsi. Starfið felur fyrst og fremst í sér vinnslu og umsýslu heilbrigðisgagna ásamt ábyrgð á daglegri skrifstofustarfsemi og samskiptum við skjólstæðinga og fagfólk. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir öguðum og vönduðum vinnubrögðum, hafi góða yfirsýn og geti haldið utan um fjölbreytt verkefni af nákvæmni og fagmennsku.

Starfið hentar einstaklingi sem nýtur þess að taka ábyrgð, halda góðu skipulagi og vera mikilvægur hlekkur í þjónustu sem nær til skjólstæðinga um allt land. Við bjóðum upp á fjölbreytt starf í metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem tækifæri eru til að taka þátt í þróun og umbótum á þjónustunni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skráning, vinnsla og umsýsla heilbrigðisgagna í sjúkraskrárkerfum, meðal annars tilvísana, vottorða, læknabréfa og annarra heilbrigðisupplýsinga.

  • Samstarf, stuðningur og afleysingar við heilsugæsluritara á öðrum starfsstöðvum

  • Umsjón með daglegri skrifstofustarfsemi og skipulagi móttöku á Akureyri og landsbyggðinni.

  • Móttaka skjólstæðinga, upplýsingagjöf, símsvörun og tímabókanir

  • Umsjón með tímaskipulagi og dagskrá móttöku í samstarfi við fagfólk

  • Aðstoð með almennt viðhald heyrnartækja og tengingar

  • Þátttaka í þróun og umbótum á verklagi, skipulagi og þjónustu stöðvarinnar.

  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast starfsemi stöðvarinnar

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisgagnafræði eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi

  • Reynsla af heilbrigðisgagnavinnslu, skrifstofuumsjón eða sambærilegum störfum er kostur

  • Mjög góð tölvukunnátta, færni í notkun upplýsingakerfa og hæfni til að tileinka sér nýjar stafrænar lausnir í starfi

  • Nákvæm, skipulögð og öguð vinnubrögð ásamt ríkri ábyrgðartilfinningu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða verkefnum og halda góðri yfirsýn

  • Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

  • Þekking á sjúkraskrárkerfinu Sögu er kostur

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

  • Góð enskukunnátta er æskileg og þekking á öðrum tungumálum, svo sem norðurlandamálum eða pólsku, er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Svava María Atladóttir

Forstöðumaður

Tölvupóstur: Svava.Maria.Atladottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 6500

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisgagnafræðingur með ábyrgð á skrifstofustarfsemi - Heyrnar og talmeinastöð HH á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026