Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor á sviði refsiréttar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Lektor á sviði refsiréttar

Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði refsiréttar við Lagadeild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.

Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur lektors í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í refsirétti á grunn- og framhaldsstigi.

  • Umsjón með námskeiðum í almenna og sérstaka hluta refsiréttarins.

  • Leiðbeining lokaverkefna nemenda.

  • Kennsla í öðrum greinum eftir sérþekkingu og þörfum deildarinnar.

  • Rannsóknir og fræðastarf á sviði refsiréttar.

  • Þátttaka í uppbyggingu og þróun refsiréttarsins.

  • Þátttaka í stjórnun deildarinnar, m.a. með setu á fundum og í nefndum.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa lokið fullnaðarnámi í lögfræði með meistara- eða kandídatsprófi frá íslenskum háskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum háskóla og hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu sem staðfest er með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla. Frekara framhaldsnám á réttarsviðinu, þ.m.t. doktorspróf, er kostur.

  • Rannsóknavirkni á sviði lögfræði.

  • Reynsla af kennslu á háskólastigi á sviði refsiréttar eða skyldra fræðigreina og góð hæfni til að miðla þekkingu.

  • Reynsla af lögfræðistörfum þar sem reynt hefur á notkun réttarreglna við úrlausn raunhæfra lögfræðilegra viðfangsefna og almenn þekking á íslenskum rétti.

  • Samskiptahæfni, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil

  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)

  4. Ritaskrá

  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið

  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur

  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrefna Friðriksdóttir

forseti Lagadeildar

Tölvupóstur: hrefnafr@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor á sviði refsiréttar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026