
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri gæðadeildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026
Deildarstjóri gæðadeildar
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra gæðadeildar á Landspítala. Gæðadeild heyrir undir skrifstofu framkvæmdastjóra lækninga.
Á gæðadeild starfa um 12 gæðastjórar sem sinna fjölbreyttum verkefnum, meðal annars umsjón með úrvinnslu atvika, gæðahandbók, árangursmælingum, úttektum og öðrum gæðamálum, auk uppbyggingar og viðhalds gæðastjórnunarkerfis Landspítala. Mikil þróun hefur átt sér stað í gæðamálum innan Landspítala undanfarin ár.
Deildarstjóri ber ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi sjúkrahússins í heild sinni. Landspítali rekur heildstætt gæðastjórnunarkerfi sem nær bæði til rekstrarsviða og klínískrar starfsemi. Markmiðið er að gæðastjórnunarkerfi sjúkrahússins verði vottað í samræmi við viðeigandi alþjóðlega gæðastjórnunarstaðla á hinum ýmsu sviðum og að rannsóknastofur sjúkrahússins verði faggiltar eftir því sem við á.
Leitað er eftir öflugum leiðtoga með mikla reynslu af gæðamálum. Deildarstjóri þarf að búa yfir framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni og eiga auðvelt með teymisvinnu og samstarf við ólík svið og fagstéttir við innleiðingu og viðhald gæðakerfa spítalans.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga. Um er að ræða 100% starf frá 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórnun og rekstur gæðadeildar
Er yfirmaður gæðadeildar með þríþætta ábyrgð
Ábyrgð á áframhaldandi mótun og þróun gæðastefnu Landspítala
Uppbygging og rekstur heildstæðs gæðastjórnunarkerfis Landspítala
Undirbúningur og framkvæmd vottana á gæðastjórnunarkerfum
Ber ábyrgð á gæðahandbók Landspítala
Stuðningur við þróun, endurskoðun og stjórnun gæðaskjala í gæðahandbók spítalans
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í gæða- og umbótastarfi
Greining og úrvinnsla atvika ásamt eftirfylgni umbótaverkefna
Þátttaka í þróun og eflingu öryggismenningar og sjúklingaöryggis
Umsjón með og stuðningur við umbótaverkefni á sviði gæða og öryggis
Stjórnun og eftirfylgni verkefna tengdum gæðavísum, árangursmælingum og þjónustukönnunum
Fræðsla og leiðsögn til starfsfólks um gæðamál, umbætur og öryggismenningu
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi innan spítalans
Hæfniskröfur
Háskólamenntun skilyrði, menntun á heilbrigðissviði æskileg
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af heilbrigðisþjónustu skilyrði
Reynsla af mannaforráðum skilyrði
Þekking og reynsla af uppbyggingu og rekstri gæðastjórnunarkerfa er skilyrði
Þekking og reynsla á atvikaskráningarkerfum er æskileg
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Reynsla og hæfni í mannlegum samskiptum og hæfileiki til að vinna í teymi
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti og færni til að miðla þekkingu til annarra
Nákvæmni og framhugsun í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, gæðastjóri, deildarstjóri, stjórnunarstarf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri gæðadeildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026